153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[19:16]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Umræðuna um trúverðugleika ríkissjóðs í þessu sambandi var ég að reyna að setja í samband við það að gerum við ekkert mun ríkissjóður safna skuldum. Það hefur líka áhrif á efnahagslífið. Það hefur áhrif á ríkissjóð og möguleika hans til að standa undir velferðarkerfi. Við getum alveg reynt að vega það saman í einhverjum hlutföllum. Stóri punkturinn er þessi: Fjármálaráðherra hefur margítrekað verið brýndur til þess af þinginu, og meira að segja með lagasetningu frá 2019, að hann skyldi koma fram með lausn til að slíta þeirri atburðarás að þessi snjóhengja myndi falla yfir okkur.

Ég tók líka eftir því, virðulegi forseti, að hér talaði hv. þm. Jakob Frímann Magnússon fyrr í umræðunni í dag í andsvörum þar sem hann tók undir að það væri rétt að láta reyna á þetta. Ég fagna því sjónarmiði. Hv. þingmaður spyr hér með beinum hætti: Er þetta sýndarveruleiki einhver sem er boðið upp á? Nei, þetta er ekki sýndarveruleiki í mínum huga. Það á að láta reyna á hvort næst samkomulag um það að við getum losað ríkissjóð út úr þessari snjóhengju.