ÍL-sjóður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hv. þingmaður telur hæstv. fjármálaráðherra hafa gengið fram af ábyrgð og festu í þessu máli. Nú er það þannig að í lögum um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs frá 2019 er mælt fyrir um ákveðin verkefni fyrir ráðherra, m.a. að setja reglugerð um áhættustefnu og áhættustýringu sjóðsins og hins vegar að skipa verkefnisstjórn um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs. Samkvæmt lögunum átti að skipa verkefnisstjórnina fyrir 1. apríl 2020. Það eru meira en tvö ár síðan. Það kemur hins vegar fram í skýrslu ráðherra að verkefnisstjórnin hafi ekki verið skipuð fyrr en núna í sumar og sú reglugerð sem ráðherra átti að setja var heldur ekki sett fyrr en í júlí núna í sumar.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann kunni einhverjar skýringar á þessu og, sérstaklega í ljósi þess að hér er mikið talað um að það geti t.d. falið í sér kostnaðarauka um 1,5 milljarða á mánuði fyrir ríkissjóð að gera ekki neitt, hvort það séu hv. þingmanni engin vonbrigði að ekki hafi verið gengið fram með þeim hætti sem meira að segja lögin gera ráð fyrir, um ákveðna tímafresti, um að skipa verkefnisstjórn til að fara með þessi mál og leysa úr þeim.