153. löggjafarþing — 23. fundur,  26. okt. 2022.

ÍL-sjóður.

357. mál
[19:25]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér í dag hefur því verið haldið fram að það séu svo stórkostlegar fjárhagsskuldbindingar í húfi fyrir ríkissjóð að það geti réttlætt það að knýja þennan sjóð í þrot með lagasetningu. Í lögfræðiáliti sem birt hefur verið á vef Stjórnarráðsins er m.a. vitnað til neyðarlaga dómsins í því samhengi. Í þessu ljósi, og í ljósi þessara miklu fjárhæða sem hér hefur verið talað um, hefði maður kannski haldið að atriði eins og tímafrestir laganna væri eitthvað sem ráðherra bæri að virða. Hugsanlega hefði gengið hraðar að vinna úr þessum upplýsingum og varpa ljósi á stöðu sjóðsins ef verkefnisstjórnin hefði verið skipuð fyrr og í samræmi við ákvæði laganna. Mér finnst það hvernig farið hefur verið að ekki alveg vera í samræmi við þá miklu fjárhagslegu hagsmuni sem eru í húfi í þessu máli.