ÍL-sjóður.
Virðulegi forseti. Kæru þingmenn, hv. þingmenn og kæra þjóð. Ég er hérna með smáræðustúf sem mig langar til þess að lesa fyrir ykkur sem hefur að gera með uppgreiðslugjöld og vexti. En áður en ég hef ræðu mína langar mig aðeins til þess að hugleiða pínulítið þetta fyrirkomulag, vexti á lánum.
Mér er í fersku minni að hérna í gamla daga var verið að auglýsa og hvetja fólk til þess að setja peninga í banka á þeim tímum sem var ekki verðtrygging. Þá var talað um vexti og vaxtavexti og vexti ofan á það. Þetta átti að vera svolítið sniðug auglýsing.
En talandi um vexti. Ég er nú búinn að standa í viðskiptum árum saman og m.a. var ég á sínum tíma með veitingahús í Kringlunni sem þótti voðalega fínt og flott, en ég skuldaði mikla peninga. Ég fékk skuldabréf, sem þótti á mjög sanngjörnum vöxtum á þeim tíma, sem var vísitölutryggt með 12% vöxtum.
Þegar ég á sínum tíma keypti Hótel Borg, þá fékk ég skuldabréf með 5% vöxtum, og ég skammast mín fyrir að segja frá því hvað ég hef fengið lága vexti. Hérna er verið að tala um 3,75% vexti sem eru í umræðunni, og það er svona það sem þetta snýst allt saman um.
En það sem mig langar til að segja hérna í þessari ræðu minni er það að verði Íbúðalánasjóður leystur upp þarf að hugsa sérstaklega um hagsmuni neytenda, þ.e. þeirra heimila sem enn eru með lán hjá Íbúðalánasjóði. Það er mikilvægt að staða þeirra verði ekki verri en ella. Fjármálaráðherra hefur fundið leið til að gera upp skuldir sjóðsins miðað við núverandi stöðu þeirra en komast hjá því að greiða kröfuhöfum Íbúðalánasjóðs bætur fyrir framtíðarvaxtatap, sem í daglegu tali er kallað uppgreiðslugjöld.
Án þess að fara nánar út í það hvernig það samrýmist orðræðu um að samningar skuli standa langar mig til að spyrja ráðherrann um það hvort sama muni ekki gilda um neytendur, þau sem enn skulda Íbúðalánasjóði húsnæðislán með þessum íþyngjandi skilyrðum, sem eru náttúrlega þessi svokölluðu uppgreiðslugjöld, sem eru ósanngjörn. Skilyrðin um uppgreiðslugjaldið eru verulega íþyngjandi fyrir neytendur og algerlega úr takti við nútímabankaviðskipti. Í raun má alveg halda því fram að þau verði að teljast óréttmætir skilmálar í samningi þar sem þau eru algerlega án nokkurra takmarkana við Íbúðalánasjóð. Þannig eru dæmi um að Íbúðalánasjóður hafi krafist hartnær 20% af eftirstöðvum lánsins í uppgreiðslugjald. Þetta er ósanngjarnt.
Það má færa sterk rök fyrir því að það séu órjúfanleg tengsl á milli uppgreiðslugjalda í samningum og stofnunarinnar Íbúðalánasjóðs, og að þegar sú stofnun sé ekki lengur til og lánið selt öðrum falli þessi ákvæði sjálfkrafa niður, enda er Íbúðalánasjóður eina lánastofnunin sem hefur ótakmörkuð uppgreiðslugjöld í sínum samningum með þeim hætti sem um ræðir.
Þessi uppgreiðslugjöld eru algerlega úr takti við nútímabankaviðskipti og eru verulega íþyngjandi og jafnvel skaðleg neytendum, ekki síst á þeim tímum þar sem bæði fjármálaráðherra og seðlabankastjóri benda fólki ítrekað á að það geti skuldbreytt lánum sínum ef á þarf að halda til að minnka annaðhvort greiðslubyrði eða áhrif verðbólgunnar. Þarna er hópur fólks sem hefur ekki átt möguleika á því.
Ég vil beina því til ráðherra að beita sér fyrir því að þessir skilmálar í lánum almennings við Íbúðalánasjóð, svokölluð uppgreiðslugjöld, verði felld brott og verði í mesta lagi 1–2% hámark eins og tíðkast hjá öllum öðrum lánveitendum sem veittu lán með skilmálum um uppgreiðslugjöld á sínum tíma.
Hafi ráðherra áhyggjur af samningsrétti í þessu sambandi vil ég nefna nokkur atriði. Í fyrsta lagi er leyfilegt að breyta samningum eftir undirritun sé það ekki neytanda í óhag. Í öðru lagi yrði lánveitandinn sem setti þetta skelfilega ákvæði í samninga sína ekki lengur aðili samningsins og því algjörlega ljóst að ekki er verið að brjóta á hans samningsrétti á nokkurn hátt.
Þess vegna þarf að gæta að því við sölu lánasafna, sem gæti komið til ef Íbúðalánasjóður verður felldur niður, að ganga þannig frá málum að niðurfelling þessara skilmála sé algerlega ljós og komi hvorki í bakið á neytendum né kröfuhöfum. Það er a.m.k. ljóst að það lítur mjög einkennilega út ef ríkið getur komið sér undan uppgreiðslugjaldi gagnvart sínum kröfuhöfum án þess að tryggja það að sama gildi fyrir neytendur gagnvart þeirra kröfuhöfum. Þá fyrst væri sjálfsköpuðum uppgreiðsluvanda sjóðsins velt yfir á saklausa neytendur af fullum þunga. Það viljum við alls ekki.