fjármögnun málaflokks fatlaðs fólks.
Forseti. Árið 2018 voru samþykkt lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Fram hefur komið í umræðunni varðandi kostnaðarmatið á bak við þau lög að enginn hafi búist við að kostnaðurinn færi fram úr eins og raun ber vitni. Samt erum við með umsögn t.d. Reykjavíkurborgar um það lagafrumvarp þar sem segir að ef þau réttindi sem þar voru gefin í þeim lögum væru fullnýtt myndi kostnaðurinn við það verða 11,5 milljarðar í Reykjavíkurborg. Þarna var verið að breyta lögunum frá því að vera skilgreining um skyldu stjórnvalda í það að vera lög um réttindi fatlaðs fólks þannig að ef fatlað fólk myndi sækja sér þau réttindi sem þar væru lögð fram þá myndi kostnaður aukast og Reykjavíkurborg gerði vel grein fyrir mögulegum kostnaðarauka hvað það varðaði. Nú er staðan sú að það hefur raungerst og kostnaður allra sveitarfélaga á landinu er að fara 12–13 milljarða umfram það sem hefur verið gert ráð fyrir með tekjum í jöfnunarsjóði á móti, til að koma til móts við þessi lög. Hæstv. innviðaráðherra kom á dögunum með innlegg í umræðuna, eins og hann hefur orðað það, um 5–6 milljarða framlag frá ríkinu inn í jöfnunarsjóð til að koma til móts við þennan kostnaðarauka. Nú er kostnaðaraukinn þarna mjög vel þekktur. Þessar stærðir sem verið er að tala um eru mjög vel útreiknaðar og vel þekktar. Þetta er kostnaður vegna búsetu aðallega og við vitum alveg hver kostnaðurinn er, allt upp í 40 milljónir á einstakling miðað við hversu mikil þjónustuþörfin er. Þannig að ég velti fyrir mér, af því að hæstv. ráðherra sagði að þetta ætti að koma fram núna: Er hæstv. ráðherra að tala um fjárauka, (Forseti hringir.) af því að kostnaðurinn er vissulega á þessu ári líka, eða er verið að tala um næsta ár? Hvenær er núna?