Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

Rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands.

[11:27]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Sakamálarannsókn héraðssaksóknara í Samherjamálinu vegna meintra mútubrota í Namibíu er rannsókn sem er skólabókardæmi um mútur til opinberra starfsmanna í þriðja heiminum. Það er 101 í mútum sem á sér stað þarna, eða meintum mútugreiðslum. Árið 2008 var gerður sáttmáli hjá OECD sem heitir aðgerðir gegn mútum erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum. Þessi samningur á nákvæmlega við það sem hinar meintu mútugreiðslur eru um. Ísland breytti hegningarlögunum í tilefni þessa samnings og þetta er grundvallarsamningur í öllum mútugreiðslum í heiminum, kallaður anti-corruption samningurinn, eða aðgerðir gegn spillingu.

Hæstv. ráðherra talaði um pólitískan vinnuhóp innan OECD. Ég bara veit ekki hvað hæstv. ráðherra á við með því að embættismaður innan OECD sé pólitískur. Ég hef tekið sjálfur þátt í starfi OECD vegna aðgerða gegn peningaþvætti og ég get fullyrt það við hæstv. ráðherra og þingheim að þar eru vinnubrögð á hæsta standardi sem tilheyrir og OECD er ein öflugasta stofnun hvað varðar gæði stjórnsýslu og vinnubrögð sem til eru í heiminum. Þetta er fyrirmynd annarra ríkja og þetta setur gæðastandardinn á öllum sviðum, m.a. varðandi peningaþvættið.

Varðandi orðspor Íslands og þessar tafir sem eru á rannsókninni og eru tilefni þessarar umræðu hér þá verð ég að segja alveg eins og er að ég vil taka undir orð yfirmanns vinnuhóps OECD gegn mútum þar sem hann segir að það sé vandræðalegt fyrir Ísland að Namibía dragi vagninn við rannsókn á Samherjamálinu. Það er vandræðalegt, það er bara þannig. (Forseti hringir.) Namibía er þriðja heims ríki og við eigum að vera í fararbroddi þarna og enginn annar.