Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[12:17]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Einmitt varðandi þjónustuskerðinguna þá snýst umræðan eðlilega um þau réttindi sem við erum að svipta fólk, það fólk sem er í mjög viðkvæmri stöðu, og að það sé ómannúðlegt og annað slíkt. Það sem mér hefur kannski þótt svolítið horft fram hjá í þeirri umræðu eru samfélagslegu afleiðingarnar sem hljótast af því að fjölga vísvitandi þeim einstaklingum sem eru á götunni, eru allslaus, í algerri neyð. Bent hefur verið á að í lögum falli ákveðin skylda á sveitarfélög til að sinna útlendingi í neyð og hefur sú þjónusta í gegnum tíðina fyrst og fremst falist í því að útvega fólki flugmiða til að komast úr landi. Útlendingur sem er strand hér, það er búið að ræna hann öllu og annað slíkt, hann veit ekkert hvert hann á að fara og hvað hann á að gera, hann getur þá fengið aðstoð frá sveitarfélaginu, t.d. til þess að komast heim til sín. Það er auðvitað ekki það sem við stöndum frammi fyrir þegar um er að ræða einstaklinga sem geta ekki farið heim til sín og hafa samt sem áður fengið synjun um að fá að dvelja hér á landi.

Það er alveg ljóst að þetta frumvarp byggir á þeim misskilningi, þessi tillaga í frumvarpinu. Að svipta fólk þjónustu að 30 dögum liðnum byggir á þeim misskilningi að fólk geti alveg farið heim til sín og það eigi bara að drífa sig heim. Þarna erum við að tala um mál þar sem lögreglan getur ekki flutt fólk með þvinguðum hætti. Vegna þess að ef hún getur það þá gerir hún það. Það eru heimildir til þess og hún gerir það. Fólk er flutt með valdi úr landi. Þarna erum við að tala um fólk sem lögreglan getur ekki flutt úr landi með valdi, m.a. vegna þess að viðkomandi er ekki með ferðaheimild eða annað. Þannig að fólkið er ekki að fara neitt. Þetta fólk getur ekki farið heim til sín. Það mun lenda á götunni. Það er alveg klárt mál að þetta ákvæði mun (Forseti hringir.) breyta því að hér mun fólki í algerri neyð á götum úti fjölga. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaða samfélagslegu afleiðingar hún telur að það muni hafa.