útlendingar.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar að ræða hvernig ég upplifi a.m.k. hluta af þessu frumvarpi sem í raun tilraun ríkisstjórnarinnar til að lögfesta hegðun sem hefur ítrekað verið úrskurðuð ólögmæt. Í þessu frumvarpi má nefnilega finna nokkur atriði sem yfirvöld eða stjórnvöld á Íslandi hafa verið að reyna að ná fram gagnvart flóttamönnum og hafa verið látin draga til baka vegna þess að ekki hefur verið lagaheimild fyrir því. Fyrir rúmu ári síðan, í febrúar 2021 ef mig misminnir ekki, a.m.k. var það um hávetur, ákvað Útlendingastofnun að svipta ákveðinn fjölda flóttafólks allri þjónustu og þar með húsaskjóli, matarpeningum og öðru slíku, vegna þess að hún leit svo á að þessir flóttamenn stæðu í vegi fyrir sinni eigin brottvísun, og brottvísunin væri í raun hafin þótt ekki væri hægt að vísa þeim á brott vegna þess að það vantaði Covid-próf til að hægt væri að vísa þeim til Grikklands. Það varð úr að þessum hópi flóttafólks var hent á götuna um miðjan vetur. Kærunefnd útlendingamála komst að þeirri niðurstöðu að þetta hefði verið ólögmæt framkvæmd og stjórnvöld hafi ekki haft heimild til að gera þetta. Þetta frumvarp — ég kem kannski inn á hin atriðin í seinna andsvari — reynir að lögfesta þá framkvæmd. Ég velti fyrir mér, vegna þess að það er ekki eins og nokkur hafi tekið pólitíska ábyrgð á að hafa hent flóttafólki á götuna án lagaheimildar, hvort það sé ekki svolítið það sem er verið að gera í þessu frumvarpi? (Forseti hringir.) Það er verið að reyna að setja eitthvað í lög sem hefur verið ólöglegt hingað til, í raun einmitt til þess að gera stjórnvöldum kleift að halda áfram því sem nú er ólögmæt framkvæmd.