Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[12:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég var einmitt með einna flesta punkta um þetta, þetta er sjötti punkturinn, um skerðingu og niðurfellingu réttinda. Rökin með þessu eru að skýra frekar réttindi sem útlendingum standa til boða sem samkvæmt lögum ber að fara frá landi brott, það eru ein rökin, og síðan séu þetta breytingar í samræmi við löggjöf og framkvæmd annars staðar á Norðurlöndum. Ég bið forseta að afsaka en þetta eru ekki rök. Það er ekki röksemdafærsla fyrir breytingu á lögum að þetta sé gert svona í öðrum löndum. Það er ekki nóg. Ég hef áhyggjur af því að þarna er verið að setja ákveðna almenna reglu um að fólk missi réttindi eftir 30 daga eftir úrskurð en síðan eru fullt af undantekningum; barnshafandi konur og réttindi barna, ég veit ekki hvort það vantar einhverjar undanþágur þarna, fyrir utan það að undanþágurnar gera þetta rosalega flókið. Það verður fullt af pappírsvinnu og alls konar veseni til að glíma við þetta. Þá veltir maður fyrir sér skjótri meðferð og mannúðlegri meðferð o.s.frv., sem á líka að vera markmið þessa frumvarps. Ég sé ekki að þetta verði til þess að bæta og gera málsmeðferð skjótari og mannúðlegri. Þarna er sérstaklega verið að taka réttindi af miðað við lögin eins og þau eru núna. Það er augljóslega minni mannúð. Það er verið að búa til fullt af aukapappírsvinnu til að passa upp á það að undanþágurnar séu réttar, hver eigi rétt á undanþágu og hver ekki. Það gefur ekki skjótari málsmeðferð, fyrir utan þennan árekstur málefnasviða dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra. Ég sé ekki að þetta ákvæði sé nein framför í áttina að því sem menn segjast vilja ná með frumvarpinu.