útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég finn mig knúinn til að koma hérna upp í framhaldi af orðum hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur. Í ljósi þess sem hefur komið fram í umræðum og ég ætla bara að ítreka vegna orða sem hv. þingmaður lét falla í garð hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra um að hann hefði ekki áhuga á málinu, að það var alveg skýrt að hann átti ekki heimangengt og er fjarri góðu gamni í dag eins og kom mjög snemma fram í umræðunni, svo það sé alveg á hreinu af því að hér voru uppi hugmyndir um að fresta umræðunni. Þá vil ég líka ítreka, af því að hér er verið að velta fyrir sér afstöðu einstakra þingmanna, að við í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs afgreiddum þetta frumvarp til þinglegrar meðferðar sem þýðir jú akkúrat þetta, að við ræðum hér saman um hlutina í þingsal. Ég hef fylgst mjög náið með þessari umræðu og þykir hún mjög áhugaverð. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún deili þeirri sýn með mér, og að ég held reyndar fleiri hv. þingmönnum sem hafa tekið til máls í þessari umræðu, að það sé mikilvægt og í rauninni eigi þessi málaflokkur það skilið að um hann ríki tiltölulega breið samstaða, ef ekki bara breið samstaða, og sátt um það hvernig við ætlum að búa um þessi mál til framtíðar.