Staðan í Íran.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því hér í seinni ræðu minni að þakka málshefjanda, hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, fyrir þessa umræðu og hæstv. ráðherra fyrir sína ræðu. Sú staða sem við höfum nú til umræðu varðar okkur öll, ekki einungis íbúa Írans. Þegar barist er fyrir jafnréttismálum hvar sem er í veröldinni þá varðar það alla heimsmyndina. Jákvæð skref eru jákvæð skref, hvort sem þau eru tekin í Íran, á Íslandi eða á Ítalíu. Það sama á við um neikvæð skref hvort sem þau eru tekin í Mjanmar, á Íslandi eða í Bandaríkjunum. Oftar en ekki varðar þessi barátta jafnréttisbaráttu kvenna á heimsvísu. En við sjáum konur alls staðar standa saman og fordæma írönsku ríkisstjórnina með mótmælum vegna reglna um klæðaburð. Fyrir ekki svo löngu mótmæltu konur um allan heim hæstaréttardómi sem féll í Bandaríkjunum og varðaði þungunarrof. Með slíkum dómi tók jafnréttisbarátta vestan hafs skref aftur á bak og líklega víðar, því miður.
Virðulegi forseti. Það eitt að Masha Amini hafi þurft að gjalda með lífi sínu fyrir einungis klæðaburð sinn, fyrir það eitt að hann var ekki í samræmi við kröfur írönsku siðferðislögreglunnar er þyngra en tárum taki. Það er þó jákvætt að konur standi upp og mótmæli og það má sannarlega lofa slíkt hugrekki. Konur í Íran eiga ekki bara á hættu að vera úthúðað á samfélagsmiðlum heldur eiga þær á hættu að þurfa að gjalda fyrir það með lífi sínu.
Virðulegi forseti. Stjórnvöld sinna sínu hlutverki í því að fordæma þessa meðferð um allan heim. Tökum ábyrgðina einnig á okkur sem samfélag með því að fordæma hana með því afli sem við höfum. Segjum það upphátt í samtölum við eldhúsborðið, á samfélagsmiðlum og hér í ræðustól.