breytingar á raforkulögum til að tryggja raforkuöryggi almennings o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Bara svo það sé alveg skýrt: Þegar ég segi að hér sé endalaus eftirspurn eftir íslenskri orku (EÁ: Grænni orku.) — grænni orku, þá er ég m.a. að vitna í orð orkumálastjóra svo mér finnst sú eftirspurn ekkert skrýtin. Ég held að það sé afar fýsilegt í ljósi umræðunnar og heimsins eins og hann er í dag að fólk vilji nýta með einum eða öðrum hætti þá orku sem við framleiðum hér, sem er fýsilegur valkostur fyrir mörg sem hingað vilja koma.
Varðandi upprunavottorðin þá held ég að ég og hv. þingmaður séum í rauninni „i bund og grund“ alveg sammála, ég ætla ekki að fara í einhverjar lögfræðilegar útskýringar á því. Mér finnst það vera í rauninni ákveðinn ljóður á málinu og ég tel reyndar, af því að salan var löngu hafin fyrir einhverja þunga umræðu um orkuskipti í heimssamfélaginu — þannig að ég er ekkert endilega viss um að þetta sé sérstaklega í samhengi við það. En ég stend við þau orð sem ég sagði að mér finnst það vera ákveðinn ljóður á þessu að fyrirtækin sem framleiða orku nýti sér þessar heimildir, því að eins og ég hef skilið það er engin krafa á þau um að gera það. Hins vegar væri hægt að mínu viti að gera þá kröfu að þau gerðu það ekki með sérstakri eigendastefnu.