153. löggjafarþing — 25. fundur,  7. nóv. 2022.

málefni hælisleitenda.

[15:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég átta mig á því að hv. þingmanni er mikið niðri fyrir í þessum málaflokki og er sennilega ósáttur við það hversu fast við erum að stíga til jarðar. Hann hafði ætlað að krýna sig sjálfan eitthvað í þeim efnum. Niðurstaða sem kemur frá Valhöll — það er nú þannig í Sjálfstæðisflokknum að við vorum að koma af 1.700 manna fundi þar sem þetta er allt saman tekið til efnislegrar meðhöndlunar. Hún er mjög skýr ályktunin frá fundinum:

„Aðkallandi er að bregðast við með breytingum á útlendingalöggjöfinni. Í því sambandi er nauðsynlegt að samræma útlendingalöggjöfina við löggjöf nágrannalanda, með tilliti til málsmeðferðar og þjónustu við þá sem sækja um vernd. Útlendingalöggjöfin þarf á hverjum tíma að byggja á mannúð, réttlæti, ábyrgð og raunsæi þar sem smæð þjóðarinnar er viðurkennd.“

(SDG: Muntu gera það?) Þar sem við ráðum við. Þetta er það sem ég er að nálgast, virðulegur forseti, akkúrat í því frumvarpi sem ég legg fram og í þeirri málsmeðferð sem við erum að stunda. Við erum að leggja áherslu á mannúð. Við erum að leggja áherslu á það að slá skjaldborg um verndarkerfi sem við erum bundin af. En við gerum okkur grein fyrir því að innviðir þjóðarinnar þola ekki mikið og við getum ekki verið hér með þá segla og þá stöðu sem uppi er (Forseti hringir.) að hingað sækja miklu fleiri flóttamenn hlutfallslega heldur en til annarra þjóða. (Forseti hringir.) Við því verðum við að bregðast og ég tel mig vera að gera það.