brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Herra forseti. Í vor bárust fréttir af því að ríkisstjórnin hygðist fara í mestu fjöldabrottvísun Íslandssögunnar. Tilefnið var að losa sig við umsækjendur um alþjóðlega vernd sem höfðu orðið innlyksa vegna Covid-faraldursins. Stjórnin náði ekki að hafa sig í verkið fyrr en í síðustu viku þegar hún nýtti tækifærið til að henda úr landi fólki sem var að bíða endurupptöku mála sinna. Réttur þeirra til að fá efnislega niðurstöðu í mál sín var staðfestur af héraðsdómi í síðasta mánuði en nú, þegar aðeins nokkrir dagar eða vikur eru þangað til sú niðurstaða kemur í máli hvers og eins, ákveða stjórnvöld og lögregla að einhenda sér í verkið og koma sem allra flestum úr landi og beinustu leið á götuna í Grikklandi, óháð því hvort viðkomandi kom hingað sem fylgdarlaust barn eða fatlaður maður í hjólastól.
Ráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af sjálfri framkvæmd brottvísunarinnar og þjónustu við þennan fatlaða einstakling meðan á henni stóð en virðist minna vera að spá í aðstæðurnar sem bíða hans á Grikklandi, sem eru vægast sagt slæmar.
Ég ætla ekki að spyrja út í þennan augljósa skort á mannúð í boði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur heldur bara það sem snertir málefnasvið ráðherrans. Það vill nefnilega svo til að mál þessa fatlaða manns verður tekið fyrir hjá dómstólunum eftir aðeins 11 daga. Hvernig réttlætir félagsmálaráðherra að fötluðum manni hafi verið sparkað úr landi gagngert til að koma í veg fyrir að hann geti sótt réttlætið fyrir dómstólum?