brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hef sagt það í fjölmiðlum og gagnrýnt það hvernig staðið var að þessari framkvæmd. Ég hef gagnrýnt að það hafi ekki verið bifreið sem gæti flutt hinn fatlaða einstakling þannig að ekki þyrfti að taka hann úr hjólastólnum sem er hans leið til að komast á milli staða. Þar er vitnað þá í m.a. 15. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, að sýna mannvirðingu og gæsku. Ég hef líka gagnrýnt það eða sett við það spurningarmerki hvort réttindagæslumaður hefði frekar átt að vera á staðnum heldur en að eingöngu væri rætt við hann í síma.
Eftir að hafa gagnrýnt þessa framkvæmd lögreglunnar og sagt að mér finnist hún ekki ásættanleg, þó svo að ég viti vel að lögreglan er að reyna að gera þessi mál af eins mikilli kostgæfni og næmni og mögulegt er, vegna þess að þetta er ekki auðvelt fyrir hana heldur, þá er maður gagnrýndur fyrir það að gagnrýna framkvæmdina. Gott og vel, þá skulum við ræða hvers vegna verið er að senda fólk yfir höfuð til Grikklands, vegna þess að það er kannski það sem er mergurinn málsins. Þar má kannski benda á að það er niðurstaða Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála, og meira að segja dómstóla í einhverjum tilfellum, að endursendingar til Grikklands brjóti ekki gegn mannréttindasáttmála Evrópu eða 42. gr. útlendingalaga. Við vitum hins vegar öll að það eru ýmsir þröskuldar í Grikklandi sem er ekki hægt að horfa fram hjá. Þegar ég er spurður hvort það sé eitthvað sem réttlæti það að hafa tekið fatlaðan einstakling til að senda hann úr landi þá var það niðurstaða Útlendingastofnunar og kærunefndarinnar að gera það. En ég kem í síðara svari nánar að því sem hv. þingmaður spurði um.