fæðingarþjónusta á landsbyggðinni.
Herra forseti. Þegar fjölskyldur athuga búsetuskilyrði, hafa í huga að flytja á landsbyggðina, er að mörgu að hyggja, þ.e. hvort það séu störf, hvort það séu leikskólapláss og hvort það sé heilbrigðisþjónusta. Það hefur ekki farið endilega mjög hátt í samfélaginu en heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni er ekki boðleg á öllum sviðum. Mig langar sérstaklega að vekja máls á því hér, og ég veit að hún verður ekki leyst í einu vetfangi, í einum óundirbúnum fyrirspurnatíma, manneklan í heilbrigðiskerfinu. Mig langar þó að vekja athygli á stöðu fæðingarþjónustu á landsbyggðinni þar sem staðan er oft og tíðum sú að ekki er svæfingarlæknir á staðnum og ekki er skurðlæknir á staðnum sem þýðir einfaldlega að ekki er hægt að taka á móti börnum. Fjölskyldur eru í gríðarlegu miklu óöryggi. Það er stór spurning um bara heilsufar hvort móðir og barn fái viðkomandi þjónustu eða hvort þau þurfi að ferðast mörg hundruð kílómetra. Þetta skiptir þeirra nánustu máli. Þau þurfa jafnvel að dvelja ýmist á Akureyri eða í Reykjavík eftir því hvar þau eru. Ég vísa hér til Austurlands af því það er mér nær en margt annað en ég get alveg eins vísað í Vestfirði og Vestmannaeyjar, svo að eitthvað sé nefnt. Fólk þarf að taka sér frí frá vinnu til lengri tíma meðan beðið er eftir að barnið fæðist. Mig langaði að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort eitthvað sé í farvatninu, hvað sé hægt að gera til að tryggja öryggi fæðandi mæðra á landsbyggðinni.