153. löggjafarþing — 25. fundur,  7. nóv. 2022.

fæðingarþjónusta á landsbyggðinni.

[15:43]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jódísi Skúladóttur fyrir þessa spurningu. Fyrst að dæminu sem hv. þingmaður kemur inn á varðandi stöðuna fyrir austan. Það dregur mjög vel fram hversu viðkvæm mönnunin er víða um land og hún er sérstaklega viðkvæm fyrir austan og kannski á Vestfjörðum. Við höfum nýlegt dæmi af Vestfjörðum sem þó er búið að leysa. Það er full þjónusta fyrir austan en hins vegar er verið að leita að afleysingalækni, svæfingalækni, og ég hef fulla trú á að það gangi upp. Við höfum sett sérstaka vinnu í gang þar sem er samtal við allar heilbrigðisstofnanir og ekki síst við Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri. Við erum að vinna þetta saman þannig að þegar slíkt kemur upp sé hægt að leysa af. Ég held að aukin samvinna þarna leysi ýmislegt. En síðan er þetta angi af stærra máli og það kemur að þessari áskorun sem birtist m.a. í samtali við hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur hér og það er mönnunin. Mönnunin er sérstök áskorun nú um stundir í kjölfarið á heimsfaraldrinum en langvarandi álag hefur þannig áhrif. Það þarf að fara í fjölmargar aðgerðir. Þessa samvinnu verðum við að fara í. Við erum með hóp í gangi sem er að vinna að umfangsmikilli mönnunargreiningu. Ég bind vonir við að það geti orðið módel sem geti nýst okkur við alla ákvarðanatöku til framtíðar, bæði er varðar uppbyggingu á námi og sérnámsplássum o.s.frv. Ég get haldið áfram með það í seinna svari.