Reynslan af einu leyfisbréfi kennara, ólík áhrif á skólastig.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu máli og leggja fram þessar spurningar sem hefur ekki verið fyllilega svarað hér í þingsal en verður áhugavert að fá svör við að endingu. Mig langar að grípa aðeins niður í greinargerð með frumvarpi til laganna sem við erum að ræða hér um, sem voru samþykkt hér á þingi 2019. Þar segir, með leyfi forseta:
„Sá munur er talinn á heimild og starfsleyfi í þessu sambandi að kennari sem hefur starfsleyfi (leyfisbréf) hefur forgang við ráðningu til kennslu á því skólastigi sem leyfisbréfið tekur til. Heimild til kennslu veitir ekki sams konar forgang en veitir skóla hins vegar heimild til að ráða viðkomandi kennara til þeirrar kennslu sem heimildin nær til án þess að afla þurfi undanþágu frá undanþágunefnd fyrir viðkomandi skólastig, sbr. VI. kafla gildandi laga. Hafi kennari með leyfisbréf hins vegar sótt um kennslustarf á því skólastigi sem leyfisbréfið tilgreinir hefur hann forgang umfram kennara sem hefur einungis heimild til kennslu á sama skólastigi. Að þessu leyti hafa markmið gildandi laga um sveigjanleika og flæði kennara milli skólastiga ekki náðst fram.“
Markmið laganna er gott að mínu mati og ég tek undir það sem hér hefur komið fram að þetta sé að því leytinu til skref í rétta átt. Spurningarnar sem hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hefur hins vegar varpað hér fram eru mikilvægar þar sem ýmislegt bendir til þess að það séu enn þá vanhöld á því að kerfið bjóði upp á þann sveigjanleika og æskilega nýliðun sem stöðug framþróun og framtíð og menntun barnanna okkar kallar á. Því þykja mér þetta mikilvægar spurningar og það verður gaman að heyra útkomuna úr þessu öllu saman, þá á blaði, t.d. hver áhrifin hafa verið með tilliti til fjölgunar eða fækkunar kennara á hverju stigi, hvort þessi lausn hafi m.a. orðið til þess raunverulega að efla skólaþróun og stuðla að nýliðun og hvatningu til starfsþróunar. Ég vil bara fagna þessari umræðu og þakka þingmanninum kærlega fyrir að vekja máls á þessu og hlakka mikið til að heyra meira.