153. löggjafarþing — 25. fundur,  7. nóv. 2022.

brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd.

[16:35]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég kem hér upp til að taka undir orð hv. þingmanna Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Jóhanns Páls Jóhannssonar. Það er ekki við hæfi að starfa hér í þessu húsi í tómarúmi, án tengsla við það sem er að gerast hér norðan megin við okkur, á Austurvelli þar sem tvisvar hafa verið haldin mótmæli vegna brottvísana og framkvæmdar þeirra í síðustu viku. Við verðum að taka lýðræðislega umræðu um þessi mál. Við verðum að horfast í augu við hversu ómanneskjulega er staðið að þessum brottvísunum og hvernig mannréttindi eru í raun purkunarlaust brotin á fólki. Síðan, frú forseti, leyfa ráðamenn þjóðarinnar sér að senda embættismenn í fréttatíma til að svara fyrir framkvæmdina.