brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Frú forseti. Já, almenningi er gjörsamlega búið að ofbjóða sú meðhöndlun sem íslenska ríkið hefur sýnt fólki á flótta. Það hvernig farið var með fatlaðan einstakling — mál hans beið afgreiðslu í dómskerfinu og með því að afgreiða það ekki er verið að brjóta í bága við alþjóðasáttmála Sameinuðu þjóðanna um fatlað fólk. En við erum líka að tala um að hingað kom fylgdarlaust barn, sem ekki var orðið 18 ára gamalt, sem samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á að taka hingað inn og veita hæli. En við erum með ráðamenn sem biðu þangað til viðkomandi var orðinn 18 ára til að geta hent honum úr landi. (Forseti hringir.) Erum við virkilega að brjóta alþjóðasamninga hér trekk í trekk án þess að blikka auga?
(Forseti (OH): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)