brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Frú forseti. Fyrir þinginu liggur frumvarp frá hæstv. dómsmálaráðherra til laga um breytingar á lögum um útlendinga sem gengur í þveröfuga átt við það sem almenningur er að kalla á hér. Nú hef ég unnið í þessum málaflokki í 14 ár u.þ.b. og það vekur alltaf áhuga minn hversu hart þjóðin bregst við þegar það sem gerist ítrekað hér í skjóli nætur er dregið fram í dagsljósið. Það er gert oft með talsverðum látum og þrátt fyrir að stjórnvöld geri ýmislegt til að reyna að koma í veg fyrir að hægt sé að færa fréttir af því eins og fram hefur komið.
Það sem mig langar til að benda á er að það er ekki löggjöfin sem er vandamálið hér. Þegar fólk sér þessa framkvæmd, sem þjóðin er augljóslega mjög ósátt við — almenningur er ósáttur við þetta, ekki bara það að ekki hafi verið nógu sérútbúinn bíll fyrir mann í hjólastól sem var fluttur úr landi heldur að hann skyldi yfir höfuð vera fluttur úr landi. Ráðherrar koma hingað upp og tala eins og þetta hafi verið eina vandamálið við þetta allt saman. Það sem skiptir máli fyrir okkur á Alþingi er að það er augljóst að við erum (Forseti hringir.) fulltrúar þjóðarinnar, við erum þjóðkjörin, það erum við sem setjum þessi lög. (Forseti hringir.) Það er augljóst að framkvæmdin er ekki í neinu samræmi við vilja þjóðarinnar, vilja almennings og vilja Alþingis. Það er augljóst að þingið þarf að stíga hér inn í (Forseti hringir.) og kanna hvað þarf að gera til að koma í veg fyrir að svona hlutir gerist, ekki til að tryggja að þeir haldi áfram að gerast (Forseti hringir.) eins og hæstv. dómsmálaráðherra er að reyna að gera með sínu frumvarpi.
(Forseti (OH): Forseti vill enn minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann. Ræðutími í fundarstjórn forseta er ein mínúta, ekki ein og hálf.)