Menntamálastofnun og námsgagnagerð.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu hér. Mig langaði til að leggja áherslu á frelsi til úrræða í henni, þá frelsi til úrræða í námsgagnagerð. Ég held að við þurfum að fá sem flesta að borðinu til að koma með það besta í námsgagnagerðinni og hafa hana sem fjölbreyttasta. Það er hægt að gera gegnum þróunarsjóði eða samkeppnissjóði, þannig að þeir sem hafa góðar hugmyndir geti komið þeim að og ýtt úr vör. Einnig snýst þetta um að auka frelsi kennaranna til að búa til námsgögn og gera þá samanburð á því sem virkar og styrkja kennarana í því. Ef þeir koma með eitthvað gott þá verða skólarnir að geta keypt þetta sín á milli þannig að það ýti undir að fólk hafi einhverja hvata til að búa til námsefni. Það er ekki gott ef þetta á allt að vera miðlægt og einhver einn á að sjá um útgáfu á þessu. Þá fáum við hvorki samkeppni né eðlilega þróun í þetta og nýtum ekki bestu lausnir hverju sinni.