153. löggjafarþing — 26. fundur,  7. nóv. 2022.

Menntamálastofnun og námsgagnagerð.

366. mál
[17:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég fagna þessari umræðu og fyrirspurninni. Ég fagna því að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra ætli að leggja niður Menntamálastofnun og koma á fót nýrri stofnun og efast ekki um að það komi eitthvað betra úr þeirri aðgerð. Eitthvað nýtt og betra mun fæðast. Ég tel að ráðherra beri að nota á aðalnámskrána og þau tæki sem hann hefur og að námsgögn eigi að vera innan þess ramma sem aðalnámskráin setur. Ég get tekið sögukennslu sem dæmi. Í mörgum ríkjum er það stórpólitískt mál hvernig sagan er kennd, svo ég tali ekki um síðari heimsstyrjöldina í ríkjum eins og Japan, Þýskalandi og fleiri ríkjum. Ég tel t.d. að sögukennsla í íslenskum skólum, a.m.k. þegar ég var þar, hafi verið algjört bull og þar var hver skóli fyrir sig að gera sína hluti. Ég er mikill áhugamaður um sögu og það sem ég fékk að læra var algerlega samhengislaust. Ég vil líka vekja athygli á markmiðum grunnskólalaganna. (Forseti hringir.) Þar segir m.a. að starfshættir grunnskóla mótist af umburðarlyndi, kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti og lýðræðislegu samstarfi. Ég tel mjög mikilvægt að við horfum á þetta markmið og að miðstjórnarvaldið komi að þessum málum með beinum hætti (Forseti hringir.) þannig að kennarar séu ekki hver í sínu horni að gera námsgögn án skýrra leiðbeininga frá ríkisvaldinu.