Menntamálastofnun og námsgagnagerð.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka góða umræðu og greinargóð svör hæstv. ráðherra en ég hlakka til að heyra restina. Ég ætla ekki að impra neitt sérstaklega á þessum spurningum en ég hef mestan áhuga á þessum breytingum á útgáfu námsgagna. Fyrirkomulagið á námsgagnaútgáfu er gamaldags og við erum í dauðafæri að gera breytingar á því. Samkeppnisforskot Menntamálastofnunar á námsgagnaútgáfu er algjört og má kalla það einokun. Við verðum að opna fyrir meira frelsi í námsgagnaútgáfu, frelsi kennaranna til að setja námsefni á dagskrá. Hlutverk stjórnvalda ætti frekar að vera takmarkað við að tryggja að námsgögn uppfylli þau skilyrði sem við viljum setja. Þau þurfa ekki að gefa þau út.
Núverandi fyrirkomulag er ekki hvetjandi til framþróunar námsgagna og það þarf að velta því upp hvort samspil sé á milli hrakandi læsis barnanna okkar og ríkisútgáfu námsgagna. Okkar er ábyrgðin að tryggja börnunum okkar sem besta menntun til að undirbúa þau vel fyrir lífið.