Menntamálastofnun og námsgagnagerð.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Það fór svolítið langur tími í fyrra svari mínu í að svara fyrstu fyrirspurninni en þar erum við að leggja til grundvallarbreytingarnar sem allt hitt mun byggja á, þ.e. að með nýrri skólaþjónustulöggjöf og nýrri þjónustustofnun erum við að reyna að virkja alla grasrótina, hvort sem er í leik-, grunn- og framhaldsskólum eða öðrum þjónustugreinum. Við erum líka að tala um geðheilbrigði í skólum o.s.frv. Þeir sem starfa við námsgagnaútgáfu, semja bækur o.s.frv., þurfa að skilja þær grundvallarbreytingar vegna þess að samhliða munum við byggja allt hitt ofan á þessar breytingar. Hluti af því er að skoða hvernig námsgagnaútgáfu er best háttað á Íslandi. Ég held að þar séu tækifæri en vil kannski ekki ganga svo langt, raunar alls ekki, að segja að miðstýrð útgáfa Menntamálastofnunar hjá ríkinu sé ástæðan fyrir hrakandi læsi í íslensku samfélagi. En með þessari nýju skólaþjónustulöggjöf og þjónustustofnun erum við að reyna að virkja alla grasrót samfélagsins til samstarfs og samvinnu um það hvernig við sjáum þessa stofnun fyrir okkur. Ég hvet alla sem eru hér í þessum sal og eru að horfa til að taka þátt í þeim vinnufundi sem verður 14. nóvember nk., heill dagur sem varðar þessi mál. Samhliða því þurfum við að taka námsgagnaútgáfuna og skipulag hennar til gagngerrar endurskoðunar. Ég ætla ekki að vera ráðherrann sem segir nákvæmlega hvernig best er að niðurstaðan úr því verði.
Ég er sammála því að það þurfi að auka frelsi og hvata. Mér fannst mjög fróðlegt þegar ég var viðstaddur síðustu útgáfu hjá Þróunarsjóði námsgagna, sem var núna fyrir einhverjum mánuðum síðan, og náði tveggja tíma samtali við þá sem þar voru og fengu úthlutað og heyrði hvaða breytingar þeir sáu að þyrfti að gera á þessum málum. (Forseti hringir.) Við ætlum að reyna að virkja þennan neista — kveikja neistann og virkja hann til að sækja fram fyrir íslenskt menntakerfi og börnin okkar. (Forseti hringir.) Ég hvet þingið til að taka þátt í því, hafa skoðun, gagnrýna það og ræða vegna þess að þannig gerum við gott menntakerfi enn betra.