153. löggjafarþing — 26. fundur,  7. nóv. 2022.

lyfsala utan apóteka.

174. mál
[17:45]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég talaði í liðnum á undan um frelsi til úrræða og nú ætla ég að tala um frelsi til þjónustu. Hér erum við með löglega vöru og ég veit ekki til annars en að það hafi gengið vel þar sem undanþága hefur verið veitt þannig að ég sé ekki, ef reynslan er góð, ástæðu til afturhalds, að leyfa ekki öðrum verslunum að veita þessa þjónustu, gefa þeim frelsi til að veita þessa þjónustu. Það má meira að segja flokka þetta undir loftslagsmál, að þurfa ekki að keyra um lengri veg eftir lausasölulyfjum ef þau eru bara með öðrum vörum. Þannig að þegar nú er komin aukin reynsla og þetta hefur náð að þróast aðeins þá held ég að við getum aðeins slakað á í þessu, þó að varfærni hafi verið orð meiri hlutans á sínum tíma.