153. löggjafarþing — 26. fundur,  7. nóv. 2022.

tryggingavernd bænda.

359. mál
[18:08]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir að koma hér til að ræða tryggingamál bænda. Á dögunum kom út skýrsla með niðurstöðu starfshóps sem vann greiningu á tryggingavernd bænda vegna óvæntra áfalla í búskap ásamt tillögum til úrbóta. Í framhaldi af því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún hyggst fylgja þeirri skýrslu eftir og tillögunum sem þar koma fram.

Skýrslan er um margt áhugaverð og þar eru dregnar fram upplýsingar um núverandi tryggingavernd, bent á göt í henni og tekið er saman yfirlit um fyrirkomulag trygginga í nágrannalöndum. Að tryggingavernd bænda koma Bjargráðasjóður, Náttúruhamfaratrygging Íslands og tryggingafélögin. Mikil breyting hefur orðið á Bjargráðasjóði síðustu ár en 2009 hættu sveitarfélögin inngreiðslu í sjóðinn og þátttöku í honum. Bændasamtökin hættu síðan þátttöku 2017 þegar innheimtu búnaðargjalds var hætt. Búnaðardeild sjóðsins var þá lögð niður og engin skipulögð tryggingavernd kom í staðinn.

Það er ljóst að það skortir upp á lagaumgjörð sjóðsins, bæði varðandi gagnsæi og samræmi sem er jú forsenda góðrar stjórnsýslu. Reglur um styrkveitingar eru í rauninni ekki almennar heldur settar fram í hverjum atburði sem á sér stað til að gæta samræmis við meðferð hvers afmarkaðs tjónsatburðar. Stjórn sjóðsins er líka sett í afar erfiða stöðu þar sem fjármögnun Bjargráðasjóðs er algerlega ófyrirsjáanleg frá ári til árs. Í þessu ljósi fagna ég sérstaklega nýrri greiningu og tillögum til úrbóta.

Fram kemur í úttektinni, svo að drepið sé á nokkrum atriðum, að tryggingavernd á húseignum, tækjum og bústofni sé almennt góð fyrir utan tjón vegna dýrasjúkdóma sem aðeins fæst bætt sé niðurskurður fyrirskipaður af stjórnvöldum. Bjargráðasjóður hefur einnig stigið inn, alla vega í ákveðnum atburðum, vegna tjóna á girðingum sem ekki er hægt að vátryggja og að hluta vegna uppskerubrests og tjóns á ræktarlandi. Hins vegar virðist vera gap í tryggingum varðandi vatnsveitur, hitaveitu, stíflur og fallpípur í eigu bænda. Uppskeru er hægt að tryggja að vissu marki, fóður og heyforða og plöntur í ylrækt ef þær eru innan húss, og þá er t.d. tryggt gegn bruna. En ekki er hægt að tryggja grænmeti, t.d. gegn frosti og þurrkum, og nytjaskógar eru ekki tryggðir.

Ég sakna greiningar á því hvaða tryggingar bændur telja mikilvægt að hafa eða hvaða göt hafa komið í ljós í tengslum við nýlegar náttúruhamfarir, svo sem þegar heyrúllur fljóta burt eða hella þarf mjólk þegar ekki tekst að sækja hana vegna skriðufalla. Í skýrslunni eru lagðar fram þrjár tillögur og ég er spennt að heyra hvað hæstv. ráðherra hefur um þær að segja.