153. löggjafarþing — 26. fundur,  7. nóv. 2022.

tryggingavernd bænda.

359. mál
[18:11]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að setja þetta mál á dagskrá. Því er til að svara, eins og kemur fram í fyrirspurninni, að starfshópur um tryggingamál skilaði umræddri skýrslu til mín og var hún birt á heimasíðu ráðuneytisins 4. október sl. Svona til að setja þetta allt í samhengi var hópurinn skipaður á síðasta ári og í honum áttu sæti, auk fulltrúa ráðuneytisins, fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Samtök fjármálafyrirtækja, fyrir hönd tryggingafélaga Náttúruhamfaratryggingar Íslands og Bjargráðasjóður og svo Bændasamtök Íslands.

Tilefni vinnunnar var ekki síst að meta núverandi stöðu tryggingaverndar í landbúnaði en talsvert er um tjón og áföll í greininni sem bændur hafa núna enga leið til að tryggja sig gegn. Verndin minnkaði talsvert þegar innheimtu búnaðargjalds var hætt árið 2017. Í kjölfarið var búnaðardeild Bjargráðasjóðs lögð niður og bændur misstu þá stuðning vegna ótryggjanlegra afurðatjóna. Sjóðurinn hefur á síðustu árum einkum veitt styrki vegna kaltjóna á ræktarlandi, vegna girðingartjóna og vegna skriðufalla. Þegar stærri áföll hafa hins vegar átt sér stað þá hafa stjórnvöld tryggt sjóðnum sérstakt fjármagn með sérstökum ákvörðunum, sem dæmi rúmar 450 millj. kr. vegna kal- og girðingartjóna veturinn 2019–2020 og 130 milljónir með sérstakri ákvörðun vegna skriðufalla í Útkinn í Þingeyjarsveit á síðasta ári.

Í skýrslunni eru lagðar fram þrjár megintillögur til úrbóta en í tveimur þeirra eru jafnframt settir fram tveir valkostir. Ég held að það sé of langt mál við þessa umræðu að fara yfir alla kostina sem skýrslan býður upp á en hvet áhugasöm hér í þinginu til að skoða það á vef ráðuneytisins.

Það sem ég hef gert er að fela stjórn Bjargráðasjóðs, eftir skýrsluna, að taka til skoðunar síðari valkost tillögu nr. 2, þ.e. sameiningu Bjargráðasjóðs og Náttúruhamfaratrygginga Íslands samhliða endurbótum á kerfinu. Sú vinna er hafin og það verður gert með samtölum stofnananna sín á milli auk könnunarviðræðna við samtök bænda og vátryggingafélög. Það er afar mikilvægt að hafa bændur sjálfa með í ráðum þarna. Það þarf að útfæra þetta fyrirkomulag mjög vandlega, ekki síst ef komið verður á nýrri tryggingu sem bætir þá vernd sem bændur hafa í dag. Stjórninni er ætlað að skila greinargerð til mín eigi síðar en í febrúar nú í vetur og í framhaldi af því er ætlunin að útfæra málið nánar, þar með talið nauðsynlegar lagabreytingar sem ég vænti góðs samstarfs við þingið um.

Ég vænti þess að niðurstaðan verði til þess að bændur búi við vernd gegn óvæntum áföllum í kjölfarið. Það er eitt af því sem skiptir okkur máli við að tryggja fæðuöryggi landsins, eins og við hv. þingmaður höfum rætt áður og ekki síst í tengslum við kornrækt. Þá er rétt að nefna í þessu samhengi að einn af þeim möguleikum sem ræddir eru í skýrslunni eru uppskerutryggingar sem ég held að séu nokkuð sem við verðum að skoða betur. Í þeim efnum er tvennt í gangi á mínum vegum. Í fyrsta lagi er að störfum hópur á vegum Landbúnaðarháskólans sem mun skila tillögu að aðgerðaáætlun í mars í vetur og mun fjalla sérstaklega m.a. um uppskerutryggingar, sem sé um sóknarfæri í kornrækt og þar með talið uppskerutryggingar.

Þá er einnig rétt að segja frá því að á fundi landbúnaðarráðherra OECD, sem ég sótti í síðustu viku, átti ég frumkvæði að því að ræða sérstaklega við bandaríska landbúnaðarráðuneytið en þar er mikil þekking og reynsla á uppskerutryggingum. Það samtal snerist um að bandaríska landbúnaðarráðuneytið myndi veita okkur sérfræðiráðgjöf um fýsileika þess að taka upp kerfi uppskerutrygginga hér á landi. Það er skemmst frá því að segja að því var tekið afar vel og ég held að það sé gríðarlega mikilvægt til að fá óháð og utanaðkomandi mat á þessum valkosti í stöðunni. Þessi vinna er í gangi og ég vil fullvissa hv. þingmann um að við erum með mörg verkefni í gangi og væntum þess að geta stigið skref fram á við í þessu efni.