tryggingavernd bænda.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. fyrirspyrjanda Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir að hefja þessa þörfu og góðu umræðu og sömuleiðis vil ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir skýr og greinargóð svör. Það gladdi mig mjög í hennar máli að heyra þá nálgun og samskipti sem menn hafa átt við Bandaríkin í þessu samhengi því að þar held ég að menn standi flestum þjóðum framar í því að tryggja sína uppskeru — og fleira, þeir eru ekki bara með uppskerutryggingar — og eru komnir mjög langt á þeirri braut. Það er mjög mikilvægt í því samhengi og sérstaklega í ljósi þess að við ætlum að efla kornrækt, útiræktun á grænmeti og þess háttar að við séum með þessar tryggingar. Það er lykilatriði í þeirri framþróun sem við sjáum fyrir okkur í draumum okkar um það hvernig við getum náð utan um það stóra og mikla verkefni.