153. löggjafarþing — 26. fundur,  7. nóv. 2022.

tryggingavernd bænda.

359. mál
[18:19]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra fyrir góð svör. Mig langar að taka undir það að nú á tímum neyðarástands í loftslagsmálum er mikilvægt fyrir okkur að endurhugsa, ekki bara fyrir bændur heldur fyrir þjóðina sem slíka, hvernig við ætlum að taka á þessum málum. Ég held að það sé af hinu góða að hugsa um sameiningu Bjargráðasjóðs og Náttúruhamfaratrygginga Íslands. Ég held að það þurfi líka að skoða hvort það séu einhverjar hamfarir sem eru ekki inni í þeim sjóði í dag en þurfi að koma inn vegna loftslagsvárinnar. Mig langaði líka að benda á, varðandi það að fjármagna slíkan sjóð og hvernig það er gert, að það hefur margt nýtt gerst á undanförnum árum varðandi útgáfu svokallaðra hamfaraskuldabréfa eða það sem heitir á ensku, með leyfi forseta, „catastrophe bonds“. Mig langaði að lokum að hvetja hæstv. ráðherra til að ræða við kollega sína og aðra aðila á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, því þetta er eitt af því sem verið er að ræða þar, hvernig við tryggjum það að borga tjón vegna náttúruhamfara.