tryggingavernd bænda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra svörin. Mjög gott að heyra að vinnan sé hafin og eins vil ég þakka góðar ábendingar frá þingmönnum inn í umræðuna. Ég hef ítrekað lagt fram tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara til að stuðla að betri samfellu og samræmi í afgreiðslu mála og að réttindi þeirra sem verða fyrir áföllum í náttúruhamförum verði sem skýrust. Skoðun á tryggingamálum bænda er í mínum huga mikilvægur þáttur í slíkri heildarendurskoðun og vil ég hvetja ráðherra til að fylgja þeirri vinnu sem nú er hafin fast eftir og er einmitt gott að heyra af samtali, upplýsingabeiðnum og öðru þar sem reynslan er til staðar.
Mig langar að koma inn á nokkur atriði sem felast í tillögunum í skýrslunni. Betri upplýsingagjöf skiptir mjög miklu máli. Komið hefur fram í gegnum þá vinnu sem ég hef átt um þessi mál að það vantar mikið upp á að bæði einstaklingum og lögaðilum, og þar með bændum, sé ljóst hvernig samspilið er milli lögboðinna trygginga og valfrjálsra trygginga, keyptra af tryggingafélögum, við bætur sem greiddar eru af Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Þetta spilar saman og hefur áhrif á verndina. Ég held að það sé mjög skynsamlegt að horfa til sameiningar eða umsjónar Náttúruhamfaratryggingar Íslands með Bjargráðasjóði og þeim verkefnum sem hann hefur nú og munu hugsanlega bætast við. Ég held að það sé þó ekki nóg. Ég held, til lengri tíma litið, að það þurfi að koma upp öflugri tryggingarsjóði heldur en við eigum nú, þar sem bændur geta greitt inn og fengið bætur þegar á reynir. Uppskerutryggingar eru mikilvægar og hafa verið ræddar hér en allt skiptir þetta máli — gagnsæ og sanngjörn tryggingavernd er liður í fæðuöryggi þjóðar.