tryggingavernd bænda.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir að taka þátt í þessari umræðu sem myndi auðvitað verðskulda lengri tíma, ekki síst vegna þess að hér erum við í raun og veru að tala um einn anga af mjög stóru viðfangsefni sem hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson nefndi líka og lýtur að því að hér erum við að horfa á algerlega nýjan veruleika varðandi aðlögun að loftslagsbreytingum, aukna hættu á ofsaveðri, á flóðum, aurskriðum o.s.frv. sem hefur allt saman áhrif á byggð og landbúnað í landinu. En líka tengt loftslagsmálum er sú áhersla sem við erum að leggja á fjölbreyttari áherslur í matvælaframleiðslu, þar með talið grænmetisframleiðslu og kornrækt, vegna þess að við þurfum að horfa til þess hvernig losun gróðurhúsalofttegunda er háttað eftir mismunandi greinum landbúnaðar- og matvælaframleiðslu. Áskoranirnar eru því mjög miklar.
Ég tek undir það sem hér er sagt um að það er ákveðin áhætta að breyta og gera nýja hluti. Það skiptir máli að skilningur sé á þeirri áhættu. Þarna er um að ræða fjárfestingar sem ungir bændur eða fólk sem er að breyta um áherslur í landbúnaði er að ráðast í. Ég vil líka nefna það að við eigum að vera kjarkaðri í því að breyta um takt og líka að vinna saman. Það er það sem ég tek svolítið með mér frá París, eftir að hafa hitt mína kollega frá OECD-ríkjunum, þar sem verið er að hvetja til aukins samstarfs milli bænda, bæði í því að laða að ungt fólk áfram í að sinna landbúnaði, mynda samfélög meira utan um landbúnað og að hjálpast að við dýrar fjárfestingar.
Ég þakka, virðulegi forseti, fyrir góða umræðu.