153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða. .

[11:20]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mig langar til að inna hæstv. ráðherra eftir uppfærðri aðgerðaáætlun og um þann hluta hennar sem varðar svokallað geirasamtal. Hafi ég skilið orð hæstv. ráðherra rétt þá stendur til að eiga þar í samtali við atvinnuvegina og að forsvarsmenn atvinnurekstrar og fyrirtækja, stórfyrirtækja, eigi að eigin frumkvæði að leggja til aðgerðir. Mig langaði að fá nánari útskýringu á þessari nálgun hjá ráðherranum og hvar þetta samtal sé statt og hvort hæstv. ráðherra hefur einhverja hugmynd um hverju þetta mun skila til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda?