153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða. .

[11:23]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni aftur fyrirspurnina og það er alveg rétt að það er auðvitað ekki þannig að skuldbindingarnar þarna séu einhverjar aðrar en stjórnvalda. En bara til að setja þetta í eitthvert samhengi, af því að það er kannski það sem við erum komin lengst með þegar kemur að orkuskiptum, svo dæmi sé tekið, það varðar samgöngurnar. Þetta snýr að því að til þess að gera raunhæfa áætlun um það hvernig við getum náð árangri þá er best að ræða við þá sem eru á vettvangi, í þessu tilfelli þá sem eru með almenningssamgöngur og bílaleigur, innflytjendur bíla o.s.frv. og vinna með þeim til þess að við séum með raunhæfar áætlanir um að fara úr bifreiðum og samgöngutækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti yfir í rafmagn og annað grænt eldsneyti.

Ég held að ekkert bendi til þess að þeir aðilar sem við erum og höfum verið í samtali við hafi ekki áhuga á að ná þessu markmiði. (Forseti hringir.) Það er líka ánægjulegt að sjá að atvinnulífið er mjög meðvitað um þau sóknarfæri sem felast í því að ná loftslagsmarkmiðum fyrir okkur Íslendinga.