153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða. .

[11:25]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Síðan 2014 hefur við Hellisheiðarvirkjun verið dælt niður koltvísýringi og brennisteinsvetni. Þarna eru yfir 12.000 tonn af koltvísýringi og 5.000 tonn af brennisteinsvetni. Þetta hefur verið gert árlega og dælt niður á 1–2 km dýpi. Nú á að fara að gera þetta við Straumsvík og flytja inn í stórum stíl. Ég spyr: Fylgir því ekki gífurleg mengun og annað að flytja þetta inn? Og ef rétt er sem sagt er, að einn dagur í eldgosinu sem var á Reykjanesskaga mengi meira en það sem er dælt niður á heilu ári, erum við þá ekki í einhverri platstarfsemi? Er þetta eitthvað gott fyrir náttúruna og hvernig verður eftirlitinu háttað með þessu?