153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða. .

[11:26]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er rétt að það er búið að vera í nokkuð langan tíma þetta verkefni sem er fyrirtæki sem ber heitið CarbFix og gengur í rauninni út á að taka koltvísýring og breyta í grjót. Það eru margir sem líta til þessa en það hafa ekki verið teknar ákvarðanir um þetta því að við eigum eftir að búa til reglugerðarumhverfi um þessa þætti og sömuleiðis hvernig það kemur fram í bókhaldinu okkar með innflutning á þessu. En það eru margir sem líta til þessa sem einnar af þessum lausnum þegar kemur að loftslagsmálum. Þetta hefur hins vegar vakið verðskuldaða athygli á alþjóðavísu og margir sýna þessu áhuga.

Varðandi eldgosin þá er það einn af þeim geirum sem ég treysti mér ekki til að fara í og veit ekki alveg við hvern ég ætti að tala. Það verður bara að hafa sinn gang og lítið meira um það að segja. Það eru engar samræður um að reyna að kolefnisjafna í tengslum við eldgosin á Reykjanesskaga eða annars staðar.