153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða. .

[11:34]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir fyrirspurnina eða ábendinguna en ég stend við að þetta eru mjög metnaðarfull markmið á Íslandi. Það liggur alveg fyrir. Ég stend líka við að við þurfum að hafa okkur öll við ef við ætlum að ná þeim. Það er unnið að því hörðum höndum. Hv. þingmaður spurði áðan um geiranálgun og annað slíkt og af hverju erum við að fara í það? Jú, það þurfa allir að koma að því ef við ætlum að ná þessum markmiðum. Ef allar þjóðir væru eins og Ísland þegar kemur að loftslagsmálum værum við ekki í þeim vanda sem við erum í dag. Það liggur alveg fyrir. Ég held að allir sem að þessum málum koma og skoða þau sjái að verkefnið núna er að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem við höfum ákveðið að ná. Þar megum við hafa okkur öll við.