153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða. .

[11:37]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður nefnir einn þátt sem er mjög mikilvægur þegar kemur að baráttunni í loftslagsmálunum. Markmið okkar er að gera enn betur og miklu betur. Mér fannst hv. þingmaður koma ágætlega inn á það vegna þess að hv. þingmaður vísar til þátta sem menn eru ekki alltaf að ræða um í tengslum við loftslagsmálin, en dregur mjög vel fram að líta þarf til allra þátta. Reyndar er það mín skoðun að þegar kemur að fjárlögunum þá þurfum við að setja þau þannig upp að það sé sérstaklega litið til loftslagsmála. Við þurfum alltaf að hafa loftslagsgleraugun á öllum þáttum til þess að ná þeim árangri og metnaðarfullu markmiðum sem við erum með. Góðu fréttirnar eru að um þetta er góð samstaða í ríkisstjórninni og ég treysti því að svo sé einnig í þinginu vegna þess, eins og ég nefndi í ræðu minni, að þetta er ekki verkefni eins ráðherra og reyndar ekki einnar ríkisstjórnar. Allir þurfa að koma að þessu og vera með augun á þessum þáttum.