Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir brýninguna. Hv. þingmaður vísar réttilega til þess að þær áætlanir sem við erum með þurfa að vera tímasettar og mælanlegar. Svo sannarlega þurfa þær líka að vera framkvæmanlegar og fjármagnið er einn þáttur í því. Það er þess vegna, virðulegur forseti, sem við erum að fara svona djúpt í verkefnin og það tekur lengri tíma. Það er ekkert mál fyrir okkur uppi í ráðuneyti að skrifa bara niður einhverja hluti, en það gerist ekkert við það eitt. Þess vegna erum við m.a. að fara í geiranálgunina og þess vegna erum við að ræða við sveitarfélögin. Svo getur maður alltaf litið á hlutina þannig að glasið sé hálffullt eða hálftómt, það er ekki neinum einum ráðherra eða hv. þingmanni um að kenna — þetta er mikil breyting. Maður vill auðvitað að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig. Á móti kemur finnst mér umræðan og vitundarvakningin úti í þjóðfélaginu gagnvart þessu hafa breyst alveg gríðarlega mikið á þessum örskamma tíma sem ég hef verið ráðherra. Þetta er stökkbreyting.