153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .

[11:42]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hélt að hv. þingmaður væri kominn eins og venjulega til að hrósa mér en það gerðist ekki í þetta skiptið. Ég var að telja það upp að við erum með 13 stofnanir og það eru 500 stöðugildi og það sem við fórum strax í að skoða var hvernig við getum nýtt þetta betur, kannski ekkert ósvipað því og þegar hv. þingmaður var hæstv. forsætisráðherra og þá var hagræðingarhópur í gangi. Við nálguðumst verkefnið þannig vegna þess að það skiptir afskaplega miklu máli að við nýtum fjármunina sem allra best og það skiptir gríðarlega miklu máli að stjórnsýslan sé skilvirk og einföld. Það skiptir t.d. máli þegar kemur að leyfisveitingum og öðru slíku að þegar er búið að taka ákvarðanir þá gangi það vel fyrir sig og allt eru þetta markmið ásamt því sömuleiðis að þjónustan sé það sem hún á að vera, m.a. er lögð sérstök áhersla á landsbyggðina. Það er sá þáttur sem hér er vísað til. Varðandi tæknilegar lausnir þá eru þær grunnurinn að því að við náum árangri og við erum náttúrlega að setja gríðarlega fjármuni í nýsköpun og slíka þætti. Þar verða menn að líta sérstaklega og alltaf til grænna lausna ef við ætlum að ná árangri.