Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .
Frú forseti. Við ræðum hér gríðarlega stórt mál en eins og vill vera með stórmál nú til dags þá er það fyrst og fremst rætt út frá umbúðum, yfirborðsmennsku og jafnvel sýndarmennsku. Ég er ekki að gagnrýna þingið hér heldur almennt umræðuna um loftslagsmálin, og viðbrögðin eru eftir því. Þau eru ekki til þess fallin að taka raunverulega á vandanum. Þess í stað er viðhaldið hreinum hræðsluáróðri, síendurteknum spám um heimsendi sem eru farnar að valda loftslagskvíða hjá leikskólabörnum. Þekkt er sagan af leikskólabarninu sem vildi ekki eignast gæludýr því það myndi ekki lifa nógu lengi vegna hamfarahlýnunar, eins og það var kallað.
Ef okkur er alvara með að takast á við þetta mál þá verðum við að fara að líta á staðreyndir en það hefur verið gert að takmörkuðu leyti. Það hefur t.d. ekki orðið merkjanleg aukning á ofsafengnu veðurfari, ólíkt því sem flestir halda fram. Ef við lítum til áhrifanna af veðurfarsbreytingum þá deyja nú af völdum veðurfars innan við 1% af þeim fjölda sem gerði það fyrir 100 árum síðan, þrátt fyrir að íbúum jarðarinnar hafi fjölgað alveg gríðarlega. Og hvers vegna er það? Það er vegna þess að fram að þessu höfum við haft trú á tækni og framförum en mér hefur þótt nálgunin í þessum loftslagsmálum oft bera merki andstöðu við ekki bara iðnbyltinguna og framfarir heldur meira að segja landbúnaðarbyltinguna líka. Menn eru komnir ekki bara aldir heldur árþúsund aftur í tímann og jafnvel farnir að líta á mannfólkið sem aðskotahlut í náttúrunni. Þannig getum við ekki nálgast þennan málaflokk. Við verðum að nálgast hann út frá framfarasýn og trú á möguleika mannsins á að gera hlutina betur.
En þessi nálgun sem hefur verið ríkjandi í málaflokkum leiðir oft og tíðum til stefnu sem hefur jafnvel þveröfug áhrif við það sem að er stefnt. Menn varpa fram lausnum á borð við vindmyllur en nú hefur orkuþörf heimsins aukist um u.þ.b. 2% á ári áratugum saman. Ef menn ætluðu að leysa bara aukninguna, bara aukninguna á hverju ári, þyrfti að leggja undir vindmyllur landsvæði sem nemur meira en þreföldu flatarmáli Íslands og raunar meira því það er ekki hægt að reisa vindmyllur á vötnum og jöklum og í borgum og þar fram eftir götunum. Á sama tíma og orkuþörf Vesturlanda, orkusjálfstæði og orkuöryggi Vesturlanda eykst leggur ríkisstjórn Íslands, í krafti umræðu um loftslagsmál, fram tillögu um bann við ekki bara vinnslu á olíu og gasi heldur bann við rannsóknum á þeim auðlindum í íslenskri lögsögu, þrátt fyrir að aukin gasnotkun á kostnað kola hafi líklega haft hvað mest áhrif á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á undanförnum árum.