153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .

[12:16]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Hæstv. forseti. Hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra óskaði eftir hrósi. Við skulum veita honum hrós fyrir það sem vel er gert og það er sitthvað hérna. En við erum nokkurn veginn sammála um að betur má ef duga skal og þetta eru krefjandi mál og við þurfum að reyna að ganga í takt. Það er ýmislegt sem við gætum eflaust byrjað að gera og kannski endurvekja stemninguna fyrir því að ganga almennilega um. Það var hér vitundarvakning fyrir allnokkrum árum um flokkun á sorpi og umhverfisvitund almennt. Sú tilfinning hefur aðeins dofnað og t.d. er eftirfylgnin hjá sveitarfélögunum ekki alveg sem skyldi almennt, því miður, og þetta eru bara hlutir sem þarf að skerpa á með reglubundnu millibili. Það kostar peninga, því miður, en við þurfum að taka til hjá okkur sjálfum í víðasta samhengi og ásýnd okkar utan frá skiptir máli hérna og sjálfsmyndin okkar.

Ég held að eitt af því sem við ræddum hérna um daginn í þinginu væri bara mjög brýnt þó að það varði ekki beint loftslagsmálin, það er að við vitum af viðbjóðslegu eitri í jarðvegi og við vatnsból sem skilið var eftir hér eftir varnarliðið. Gerður var samningur um 1970 að þeir þyrftu enga ábyrgð að bera á því. Það var fyrir þessa vitundarvakningu um umhverfismál í heiminum og allt það. Við eigum ekkert að vera að bíða með það, ef þeir vilja ekki taka ábyrgð á því að borga það sjálfir verðum við bara að gera það og beita okkar ráðum til að ná því til baka. En það að vita af því að framtíðarkynslóðir séu að lepja vatn með kannski úraníum eða kjarnorkuúrgangi einhverjum sem aldrei hefur verið viðurkenndur, en víst er að var hér geymdur, eitthvað af slíku — við þurfum að taka á þessum málum og vera ekkert að hlífa sjálfum okkur við því eða öðrum.

Hellisheiðarvirkjunin sem núna er verið að reyna að ná utan um var þannig til að byrja með að tækin mín í hljóðverunum byrjuðu öll að skrölta og braka út af gufunum. Þeir sem vitið hafa fullyrtu að ef mannshaus yrði stungið inn í strókinn sem þar stóð upp úr væri maðurinn dauður á sekúndubroti.

Útblástur almennt — t.d. í Los Angeles í Kaliforníu var tekið á honum með svokölluðum „smog devices“, útblásturshömlunum. Það eru hlutir sem aldrei hafa komið til álita á Íslandi, dálítið dýr búnaður, en bara ófrávíkjanleg regla að menn skyldu kaupa sér slíkt. Ég er að segja: Við skulum bara sammælast um það að ná þessum markmiðum, reyna að ganga í takt. (Forseti hringir.) Við skulum styðja við stjórnvöldin sem eru ábyrg og hrósa ráðherranum fyrir jákvæð fyrirheit um það og vonandi tekst okkur að ná takti við þetta.