153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .

[12:23]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrslugjöfina. Okkur finnst líklega öllum árið 2040 vera órafjarri í burtu en staðreyndin er sú að framtíðin er rétt handan við hornið. Nú er útlit fyrir að við náum í rauninni ekki okkar markmiðum ef núverandi staða breytist ekki. Á nýjum vef, orkuskipti.is, kemur í ljós að við eigum enn langt í land þegar kemur að öflun grænnar orku. Staðreyndin er sú að okkur vantar meiri orku til að uppfylla markmið okkar. Það er ekki svo einfalt að við drögum hana upp úr hatti. Þvert á móti þarf að sýna mikla framsýni við öflun endurnýjanlegrar orku því að það mun taka mörg ár. Við sjáum okkur fyrir okkur í framtíðinni keyrandi um á grænni orku, að fljúga og jafnvel sigla, auk þess sem við ætlum að hætta notkun á jarðefnaeldsneyti í atvinnulífinu. Aukin orkuþörf blasir því við okkur og kemur skýrt fram í nýlegum orkuspám en áhugavert verður að sjá þá nýjustu sem er væntanleg. Skilaboðin eru skýr: Nýta þarf möguleika landsins, hvort sem það er vatnsafl, jarðvarmi eða vindorka. Við þurfum að virkja meira og sækja þessa grænu orku sem við búum að hér á landi. Þess ber þó að geta að það þarf að vinnast í sátt og með virðingu fyrir náttúru landsins. Við vitum að þetta gerist ekki án þess að við hér á Alþingi og innan ríkisstjórnarinnar tökum ákvarðanir. Þær geta verið erfiðar, þær geta verið dýrar og þær geta verið óvinsælar en þarna eigum við að vera staðföst og sýna þor. Ég hef fullvissu um að þegar við horfum til baka í framtíðinni mun okkur þakkað fyrir líkt og nú er gert varðandi orkuskipti heimilanna sem voru á sínum tíma.

Staðan er hins vegar sú að takmarkað hefur verið virkjað á undanförnum árum miðað við eftirspurn. Þessi staða rímar ekki við markmið okkar í orkumálum. Ef núverandi stöðu er ekki breytt horfum við fram á að ná ekki settum markmiðum, hvorki í loftslagsmálum né lífsgæðum. Ólík sjónarmið munu alltaf kljást við í málum sem þessum en að mínu mati vega sjónarmið heimilanna, atvinnulífs og loftslagsmála þyngst. Við þurfum að leita allra mögulegra leiða til að uppfylla orkuþörf landsins, finna fjölbreyttar leiðir og vera tilbúin til að taka samtalið.

Virðulegur forseti. Staða Íslands í dag er öfundsverð þegar kemur að orkumálum þar sem við höfum öll þau tækifæri sem þarf til að vera sjálfbær á því sviði. Í ljósi þeirrar stöðu höfum við allt sem þarf til að framleiða okkar eigin rafeldsneyti í stað þess að flytja það inn dýrum dómi. Viljum við virkilega, í ljósi öfundsverðrar stöðu okkar, flytja inn rafeldsneyti í framtíðinni líkt og við gerum með jarðefnaeldsneyti í dag? Því langar mig að varpa þeirri hugleiðingu fram við hæstv. ráðherra hvort innflutningur á rafeldsneyti sé framtíðarsýn landsins. Framtíðarsýnin er vonandi sú að við verðum sjálfbær, hættum að kaupa olíu og bensín erlendis frá og (Forseti hringir.) framleiðum í samræmi við orkuþörf Íslands. Það er okkar stærsta framlag til loftslagsmála og sjálfbærni (Forseti hringir.) og það er líka eina leiðin til að tryggja orkusjálfstæði landsins.