Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .
Virðulegi forseti. Loftslagsbreytingar hafa skaðleg áhrif á marga þætti sem síðan í samspili sín á milli magna upp afleiðingarnar; öfgar í veðurfari, hitabylgjur, flóð, brostnar árstíðir, bráðnun jökla, hækkun sjávarborðs, uppskerubrestur, vanþrif dýra, löskuð matvælaframleiðsla og fæðuskortur. Afleiðingar þess sjáum við svo í vaxandi neyð víðs vegar um heiminn, ójöfnuði sem hrekur fólk á flótta frá heimkynnum sínum í leit að loftslagsjafnrétti og tryggari framtíð fyrir sig og sína, eins og ég kom inn á í fyrri ræðu minni.
Samkvæmt síðustu skýrslu IPCC þarf að lágmarki að vernda og varðveita allt að 50% af yfirborði vistkerfa jarðarinnar, land, sjór og vatn, til að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika, viðnámsþrótti og virkni vistkerfa. Hvort sem litið er til einstakra svæða eða samfélaga fólks á heimsvísu blasa alls staðar við okkur deyðandi áhrif loftslagsbreytinga; hnignandi, óstöðugri vistkerfi, röskuð búsvæði, útdauði tegunda á hraða sem við höfum ekki áður séð og tap á líffræðilegum fjölbreytileika. Þar á ég einnig við breytileika og möguleika innan tegunda til að bregðast við og aðlagast nýjum aðstæðum og til frekari tegundamyndunar en þar hefur Ísland einmitt mikla sérstöðu. Það er því mikilvægt að samhliða baráttunni við loftslagsvána fari fram uppbygging og endurheimt vistkerfa þar sem við höfum gengið of nærri náttúrunni, ásamt verndun þeirra sem enn eru ósnortin.
Svipmyndir af eyðileggingu vegna loftslagsbreytinga eru oft af landi, soltinn fíll sem bíður dauðans upp við visnað tré eða hræ dýra sem brunnið hafa í hörmulegum skógareldum, en raunin er engin önnur í hafinu þar sem gríðarstór og sífellt öflugri veiðarfæri sópa upp auðlindum, berja botninn og hrófla þannig við viðkvæmum lífkerfum á hafsbotni, að ótalinni þeirri gríðarlegu losun kolefnis sem felst í jarðraski í setlögum hafsins, en meira kolefni er geymt á hafsbotni en annars staðar í náttúrunni. Hafið gegnir veigamiklu hlutverki við að gleypa koltvísýring sem verður til af mannavöldum í gegnum ýmis náttúruleg ferli. Ofgnótt þess kolefnis veldur síðan súrnun sjávar. Þá er vert að halda til haga þeim áhrifum sem hlýnun hafsins hefur á ýmsa nytjastofna sem ekki virða landamæri, til að mynda makríllinn. Ljóst er að slíkt mun tyrfa til muna samskipti þjóða á komandi árum.
Sú ofuráhersla á stórfellda frekari orkuöflun sem svífur hér yfir vötnum til að leysa loftslagsvandann dregur skammt til framtíðar. Það þarf áherslu á betri orkunýtingu, breytta hætti, sem einhverjir hafa nefnt hér, en það sem færri hafa á orði er að undirstaða alls er verndun náttúru og vistkerfa heimsins. Á þetta þurfa íslensk stjórnvöld að leggja meiri áherslu en hér hefur komið fram.