153. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2022.

Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .

[12:30]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég nefndi og lagði áherslu á það í fyrri ræðu minni að í markmiðunum skipti öllu máli að aðgerðir séu í kjölfarið tímasettar og markmið mælanleg og fjármögnuð. Þetta sýnist mér vera gegnumgangandi vandi í annars góðum og göfugum markmiðum. Ríkisstjórnin hefur hvatt aðra til dáða og biðlað til almennings og atvinnulífsins um að gera sitt. Það er alveg rétt að við þurfum öll að taka þátt eigi árangur að nást fram, en ríkisstjórnin hefur sjálf öll tækifæri til að hafa jákvæð áhrif og ætti að taka sér stærra og kraftmeira hlutverk en hún gerði á síðasta kjörtímabili.

Mig langaði aðeins til að ræða stöðuna hvað varðar samfélagslosun og þá málaflokka sem þar vega þungt og þyngst, vegasamgöngur og fiskiskip. Þessir flokkar hafa nánast staðið í stað milli ára síðan fyrsta aðgerðaáætlunin í loftslagsmálum var kynnt. Breytingarnar sem við höfum verið að sjá og þessar sveiflur sem hafa verið held ég að hafi nú að einhverju marki stjórnast af breytum á borð við heimsfaraldurinn, sem fækkaði ferðamönnum verulega, og það mætti líka líta til falls WOW air. Auðvitað þarf að horfa á fiskiskipaflotann og bílaflotann og markvissar aðgerðir þar eigi að nást fram árangur sem máli skiptir varðandi þessa tvo punkta. Samdráttur í samfélagslosun er lítill, eins og ég nefni, og vanefndir á markmiðum okkar verða okkur dýrkeyptari með hverju árinu sem líður. Því velti ég fyrir mér hvort það gæti verið skynsamlegt að setja fram undirmarkmið á ársgrundvelli sem leggja grunn eða styðja við stóru markmiðin þannig að hægt sé að fóta sig áfram skref fyrir skref. Þetta helst í hendur við gagnrýni mína og áhyggjur sem ég þreytist ekki á að nefna, að góð markmið verða að raungerast í tímasettum, mælanlegum og fjármögnuðum aðgerðum.