Loftslagsmarkmið Íslands, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. .
Frú forseti. Hér áðan nefndi ég aðeins umbúðamennskuna í umræðu um þennan málaflokk. Ekki síður stór vandi og raunar nátengdur er að það skortir algerlega heildarsýn þegar verið er að ræða þetta og bregðast við. Það birtist til að mynda mjög vel í afstöðu m.a. sumra hv. þingmanna stjórnarliðsins um að það væri betra að hætta álframleiðslu á Íslandi. Hverjar yrðu afleiðingarnar af því? Framleiðslan myndi einfaldlega flytjast til Kína, eins og hún hefur gert frá bæði Norður-Ameríku og öðrum Evrópulöndum á síðustu árum, og þar yrði losunin u.þ.b. tífalt meiri en hún er hér. Það besta sem Ísland hefur gert í loftslagsmálum var að ráðast í álframleiðslu hér á landi. Fram hjá þessu er litið vegna þess að það skortir heildarsýn og umræðan byggist á frösum og umbúðum.
Svo er ráðist í aðgerðir á borð við að eyðileggja ræktarland með því að moka ofan í skurði og stjórnvöld styrkja þetta. Algjörlega furðuleg ráðstöfun, því ekki nóg með að með þessu sé líklega verið að losa meira metan sem losnar úr votlendi, heldur er litið fram hjá tækifærinu sem felst í því að rækta þá frekar tré og skóg í þessu landi sem sannarlega bindur kolefni.
Talandi um það þá fer gróið land á jörðinni ekki minnkandi. Það eykst. Umfang skóga, þar á meðal, eykst ár frá ári — reyndar m.a. vegna aukins koltvísýrings í andrúmsloftinu, enda er það lofttegund sem er nauðsynleg fyrir allt líf, ekki síst gróður, og dælt inn í gróðurhús. En við heyrum bara neikvæðar fréttir. T.d. er lítið búið að fjalla um það sem kom á daginn ekki alls fyrir löngu að stóra kóralrifið við Ástralíu, sem hafði verið ein af táknmyndum loftslagsbreytinga, væri að lifna við. Það hefur ekki verið í eins góðu standi í marga áratugi og það er nú. Ísbjarnastofninn hefur ekki staðið eins sterkt áratugum saman. Þegar við fáum ekki að heyra jákvæðar fréttir, þegar við fáum ekki jafnvægi í umræðuna, þá leiðir það oft til rangra ákvarðana. Þegar hvert einasta flóð, hvirfilbylur eða önnur veðurfarsáhrif hvar sem er í heiminum eru túlkuð sem bein afleiðing loftslagsbreytinga og notuð til að ýta undir hugmyndina um heimsendi, þá skilar það ekki skynsamlegustu ráðstöfunum til að takast á við það sem er vissulega vandi, aukið magn koltvísýrings í andrúmsloftinu og hækkun sjávarborðs. Til að geta tekist á við vandann af skynsemi þurfum við að líta til staðreyndanna.