sjúkratryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni kærlega fyrir andsvörin, þetta voru allt mjög góðar og gildar spurningar. Ég á ekki svör við þeim öllum, sérstaklega ekki þessari stóru: Af hverju? Þessar fyrirspurnir mínar eru kannski liður í því að fá frekari upplýsingar upp á borðið. Mig langaði að drepa aðeins á þessu sem hv. þingmaður talar um hvað varðar eftirfylgnina. Það er alveg klárt, ég hef fengið fréttir af því, að fólk sem hefur farið í aðgerðir erlendis, nýtt sér þann rétt, hefur lent í einhverjum vandræðum í kjölfarið. Það verður svolítið eitt á báti og þarf að leita til viðkomandi þjónustuveitanda erlendis, hvort sem er í Svíþjóð, Danmörku eða hvar sem er. Það er ekki kerfi hér heima sem grípur utan um það. Þetta er því ákveðin áhætta fyrir einstaklinga. En það er líka rétt að fólk fer með aðstandendum og í einhverjum tilfellum fara læknarnir hér heima með út.
Hv. þingmaður spurði: Getur ástæðan verið óttinn við flótta sérfræðilækna frá ríkisreknum spítölunum yfir í einkarekstur? Það getur vel verið að það sé hluti af skýringunni. Hins vegar er það svo að það eru læknar starfandi á þessum einkareknu klíníkum eða heilbrigðisstofum, hafa verið það um árabil, líka einhverjir innan hinna ríkisreknu eininga, og auðvitað snýst þetta bara um samningagerð. Þú bara semur. Við þekkjum það öll sem höfum staðið í því að semja að það er hægt að negla niður einhvern fjölda, einhverjar fjárhæðir, einhverjar aðgerðir, einhver skilyrði. Mér vitandi hefur ekki verið gengið svo langt. Það er ekkert verið að nálgast málið þannig. Síðan er það kannski þetta, sem ég er að reyna að fá ráðherra og ráðuneyti til að varpa einhverju ljósi á, (Forseti hringir.) en það eru samningar við þá aðila sem eru erlendis. Þetta er alveg aðkallandi spurning: (Forseti hringir.) Má þetta án þess að leyfa Íslendingum að koma að borðinu? Mig langar aðeins til að fá nálgast þetta aftur í seinni umferð.