sala Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Undanfarin 14 ár hefur mikil orka farið í að endurreisa traust fólksins í landinu á fjármálakerfinu og til stjórnmálanna. Hvernig ríkisstjórnin tekur á Íslandsbankamálinu mun skipta sköpum í því hvernig við komumst áfram sem samfélag út úr þessari traustskrísu. Hæstv. fjármálaráðherra bar að hafa eftirlit með því að salan á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka færi fram samkvæmt lögum. Honum bar að sannreyna að hæsta verð væri tekið fyrir hlutinn. Honum bar að tryggja jafnræði milli fjárfesta og að þess yrði gætt. Nú liggur fyrir skýrsla frá Ríkisendurskoðun sem staðfestir að ráðherra brást í öllum þessum atriðum. Hann samþykkti söluna án þess að vita á hverju verðið byggði og nú liggur fyrir að verðið tók mið af forsendum erlendra fjárfesta, forsendur sem hvergi var talað um í markmiðum útboðsins, forsendur sömu erlendu aðila og seldu sig út úr bankanum um leið og tækifæri gafst og tóku þannig snúning á ríkiseign eftir að hafa knúið fram óþarfaafslátt. Hann sannreyndi hvorki hæsta verð né jafnræði til fjárfesta. Hæstv. fjármálaráðherra vissi að mikill áhugi var á útboðinu og þar með að tilboð fjárfesta yrðu skert. Hann fékk ekki fullnægjandi upplýsingar um hvernig jafnræði yrði tryggt í slíkri stöðu og gerði engar athugasemdir við það. Allt er þetta rakið í skýrslunni sem er þungur áfellisdómur yfir vinnubrögðum hæstv. fjármálaráðherra og staðfestir að sala á tugmilljarða ríkiseign var á sjálfstýringu, að ráðherra hirti ekki um að sinna eftirliti og söluráðgjafar fengu frítt spil í söluferlinu.
Virðulegi forseti. Við þurfum að tala hér inni um forystu og ábyrgð. Er hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir enn þeirrar skoðunar eftir lestur skýrslunnar að hæstv. fjármálaráðherra hafi uppfyllt skyldur sínar við söluna á Íslandsbanka?