153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

sala Íslandsbanka.

[15:10]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það sem er alvarlegt í þessu máli er hversu margsaga hæstv. fjármálaráðherra hefur orðið í þessu máli öllu og nú tekur hæstv. forsætisráðherra undir þá punkta. Það kom margoft fram í fullyrðingum eftir að þetta mál kom upphaflega fram að hæsta verðið hefði verið útgangspunkturinn. Eftir á komu síðan útskýringar um að dreift eignarhald hefði verið það sem skipti máli. Það liggur hins vegar fyrir að jafnræðis var ekki gætt, meira að segja í dreifingu á þessu eignarhaldi og yfir þetta er sérstaklega farið í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ég vek bara athygli á því hversu alvarlegt það er að við heyrum nú báða hæstv. ráðherra í þessari ríkisstjórn vera mjög margsaga um málið. Því liggur auðvitað beinast við að við munum ekki ljúka þessu máli og það verði ekki leitt til lykta nema sett verði á fót rannsóknarnefnd og rannsóknarskýrsla fari yfir þessa atburðarás, því að við getum við ekki setið undir þessu og þjóðin getur ekki setið undir þessum útskýringum. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra, sem neitar að svara um ábyrgð hæstv. fjármálaráðherra: Mun hún beita sér fyrir því að rannsóknarnefnd verði skipuð um málið svo að við séum ekki svona margsaga um það hér í þinginu?