153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

sala Íslandsbanka.

[15:12]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég er nú bara hér að vitna í þau gögn sem voru lögð fram. Ég vitna hér ekki bara í umfjöllun í álitum meiri hluta þeirra þingnefnda sem fjölluðu um málið heldur líka minni hluta, þannig að ég held að við verðum að horfa til þess. Mér finnst þessi skýrsla góð. Ég veit ekki hvað hv. þingmanni finnst en mér finnst þessi skýrsla góð. Mér finnst hún gefa góða mynd af ferlinu. Mér finnst hún líka gefa góða mynd af annmörkum og það er ekki eins og ég fagni því hér að lesa um þá annmarka sem voru á framkvæmdinni. Ég vil minna á það, af því að hv. þingmaður spyr um ábyrgð fjármálaráðherra, að hæstv. fjármálaráðherra kallaði sjálfur eftir þessari skýrslu í ljósi þeirrar gagnrýni sem kom fram á ferlið. Það er vegna þess að ríkur vilji er hjá stjórnvöldum til að hér sé í alvöru allt uppi á borðum. Í skýrslunni er svo vísað til þess að það sé hins vegar ekki svo að hún svari öllum spurningum. Seðlabanki Íslands er enn með ákveðna þætti þessa máls til skoðunar og ég tel víst að þótt þeirri skýrslu verði ekki skilað til þingsins að það verði líka til umræðu hér á vettvangi þingsins. (Forseti hringir.) En það er ekki hægt að segja neitt annað en að stjórnvöld hafi beitt sér fyrir því að þetta mál sé allt uppi á borðum hér á þingi þannig að okkur gefist færi á að fara yfir það frá A til Ö.